Fulltrúar frá ABB, Rafporti, RAFMENNT og sveinsprófsnefnd við afhendinguna.
Fulltrúar frá ABB, Rafporti, RAFMENNT og sveinsprófsnefnd við afhendinguna.

Þann 5. október 2023 tók RAFMENNT á móti höfðinglegri gjöf frá ABB og Rafport vegna sveinsprófa í rafvirkjun. Gjöfin samanstóð af töflubúnaði sem nýtist sveinsprófstökum í sveinsprófi og var meðal annars: Sjálfvör bæði ein- og þriggja fasa, bilunarstraumsrofar, stuðstraumsrofar og þriggja fasa varrofar.

RAFMENNT þakkar kærlega fyrir gjöfina sem á eftir að nýtast vel í komandi sveinsprófum.