Rafmennt býður upp á fjölbreytt almenn námskeið sem eru ekki bundin við rafiðnað eða tæknigreinar. Námskeiðin eru opin öllum sem vilja efla færni sína, auka öryggi og styrkja sig í daglegu lífi og starfi.

Auk sérhæfðs iðn- og tæknináms býður Rafmennt upp á hagnýt námskeið sem nýtast breiðum hópi – bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Hér fyrir neðan eru dæmi um námskeið sem fram undan eru, sett fram í tímaröð eftir upphafsdegi.

18. - 25. mars 2026 - Staðkennsla
Drónaflug og myndvinnsla
Námskeið um notkun dróna og vinnslu myndefnis – frá undirbúningi og upptöku til frágangs og birtingar.



Hefst 26. mars 2026 - Staðkennsla
Ekki láta hakka þig! – Öryggisvitund á netinu
Fyrir þá sem vilja verjast netógnum og efla öryggisvitund í stafrænu umhverfi – bæði í starfi og einkalífi.

 

Hefst 27. mars 2026 - Staðkennsla
Skyndihjálp - almenn
Hagnýtt námskeið þar sem farið er yfir viðbrögð við slysum og bráðum veikindum. Þekking sem getur skipt sköpum á vinnustað, heimili eða í frítíma.

 

Alltaf opið! - Fjarnám 
Fjármál heimilisins
Grunnnámskeið í fjármálalæsi þar sem farið er yfir rekstur heimilis, sparnað, lán og áætlanagerð.



Alltaf opið! - Fjarnám
Sparnaður og fjárfestingar
Yfirlit yfir mismunandi sparnaðarleiðir og grunnatriði fjárfestinga – með áherslu á upplýstar og ábyrgar ákvarðanir.

 

Alltaf opið! - Fjarnám
Lán og lánshæfi
Farið er yfir helstu tegundir lána, hvernig lánshæfi er metið og hvað skiptir máli við lántöku.

 

Alltaf opið! - Fjarnám
Fjármál heimilisins - allur pakkinn
Heildstæð nálgun á fjármálum heimilisins þar sem þátttakendur fá dýpri innsýn og verkfæri til að taka upplýstar fjárhagslegar ákvarðanir.


7. - 9. apríl 2026 - Staðkennsla
Hjólaviðgerðir
Fyrir þá sem vilja læra að sinna viðhaldi og einföldum viðgerðum á reiðhjólum. Hentar bæði byrjendum og áhugasömum hjólreiðafólki.


Námskeiðin eru opin öllum og henta jafnt einstaklingum sem vilja bæta við sig þekkingu og fyrirtækjum sem vilja efla starfsfólk sitt.

👉 Nánari upplýsingar og skráning er að finna undir Endurmenntun - Námskeið í boði