Áfangaheit: ALMN10HJÓL
Hjólaviðgerðir – grunnnámskeið
Viltu öðlast sjálfstraust í að annast hjólið þitt í öruggu umhverfi og góðum félagsskap? Eða rifja upp gamla takta?
Þá gæti þetta námskeið hentað þér.
Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendum kleift að öðlast grunnskilning á virkni og viðhaldi reiðhjóla.
Lögð er áhersla á að námskeiðið sé aðgengilegt, einstaklingsmiðað og opið öllum – óháð fyrri reynslu.
Engin forkunnátta er nauðsynleg, en þátttakendur þurfa að geta lyft hjólinu sínu í viðgerðastand.
Hver og einn kemur með sitt eigið hjól og vinnur að því á eigin hraða.
Fyrirkomulag námskeiðsins:
Námskeiðið er þrjú kvöld, fyrsta kvöldið samanstendur af fræðslufyrirlestrum og undirbúningi fyrir almennt viðhald reiðhjóla. Seinni tvö kvöldin samanstanda fyrst og fremst af verklegri kennslu og þjálfun.
Eftir afhendingu námskeiðsgagna fær hver þátttakandi sína vinnustöð. Leiðbeinandi gengur á milli og veitir aðstoð eftir þörfum.
Æskilegt er að þátttakendur komi með gírahjól í nothæfu ástandi (ekki hjól sem hafa staðið óhreyfð utandyra í langan tíma). Hjól með innbyggðum gírum henta síður fyrir þetta námskeið.
Innifalið í námskeiðsgjaldi:
Notkun á verkfærum og búnaði
Öryggisbúnaður (hlífðargleraugu og einnota hanskar)
Grunnvarahlutir (barkar, vírar, vírendar)
Olíur og smurefni
Aðrir íhlutir og varahlutir eru ekki innifalin í verði, en reynt verður að útvega þá eftir bestu getu, í samráði við þátttakendur og leiðbeinanda.
Við skráningu er æskilegt að gefa upp hvaða hjól unnið verður með – eða hvort óskað sé eftir að leiðbeinandi útvegi hjól.
Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að geta sinnt grunnviðhaldi hjóla heimilisins. Þeir munu einnig geta framkvæmt einfalda öryggisskoðun og metið viðgerðarþörf.
Vert að benda á að það eru aðeins 6 pláss á þessu námskeiði, svo hægt sé að sinna hverjum einum sem best.
Dagsetningar námskeiðs
Námskeið 1: Þriðjudagurinn 6.maí, miðvikudagurinn 7.maí og miðvikudaginn 14. maí
Námskeið 2: Fimmtudagurinn 15.maí, miðvikudagurinn 21.maí og fimmtudaginn 22.maí
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
Fullt verð 39.900 kr
RSÍ endurmenntunarverð 14.900 kr
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050