Fara beint í efni

Sveinspróf í rafvirkjun

Ekki er opið fyrir skráningu

Sveinspróf í rafvirkjun eru haldin í febrúar (viku 6) og júní (viku 23) í Reykjavík og á Akureyri ef næg þátttaka fæst.

Ferlið í stuttu máli

  1. Ljúktu vinnustaðanámi

    Samkvæmt rafrænni ferilbók eða námssamningi. Því þarf að vera lokið áður en sveinsprófið hefst.

  2. Sæktu um innan umsóknarfrests

    1.–30. nóvember fyrir febrúar og 1.–31. mars fyrir júní. Gátlistinn á umsóknarsíðunni sýnir hvaða gögn þurfa að fylgja.

  3. Kynningarfundur

    Sveinsprófsnefnd kynnir prófin fyrir próftökum hjá Rafmennt og á Teams.

  4. Prófin

    Skriflegur hluti og verklegur hluti eftir dagskrá.

  5. Prófsýning og sveinsbréf

    Mennta- og barnamálaráðuneytið gefur út sveinsbréfin og þau eru afhent við athöfn.

Umsóknarfrestur

Sveinspróf

Umsóknarfrestur

Febrúar

1.–30. nóvember

Júní

1.–31. mars

Um prófið

Sveinspróf í rafvirkjun skiptist í verklegan hluta og skriflegan hluta.

  • Verklegur hluti: raflagnir og stýringar (básinn) og mælingar.

  • Skriflegur hluti: íslenskur staðall, rafmagnsfræði og raflagnateikning.

Reglugerðir og leiðbeiningar

Umsjón