Fara beint í efni

Sveinspróf

Rafmennt annast framkvæmd sveinsprófa í rafiðngreinum: umsóknir, próftöflur og niðurstöður.

Sveinspróf í V27

Opið fyrir umsóknir til 30. nóvember 2026

26 dagar eftir til að sækja um. Prófin fara fram 8.–17. febrúar 2027.

Sækja um sveinspróf →

Umsóknarfrestur

Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun og rafveituvirkjun eru haldin í febrúar (viku 6) og júní (viku 23) ef næg þátttaka fæst. Sveinspróf í rafvirkjun eru haldin í Reykjavík og á Akureyri.

Sveinspróf í raf-, rafveitu- og rafvélavirkjun

Umsóknarfrestur

Febrúar

1.–30. nóvember

Júní

1.–31. mars

Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum í gegnum vefsíðu Rafmenntar.

Sveinsbréf

Sýslumaður sér um útgáfu sveinsbréfa, gjald fyrir útgáfu sveinsbréfa er 12.000 kr.

Ef sveinsbréf hefur glatast eða skemmst er mögulegt að fá staðfestingu á sveinsprófi senda í tölvupósti frá Rafmennt. Ef einstaklingur vill láta prenta það aftur þarf að hafa samband við sýslumannsembættið.

Reglugerð

Mennta- og barnamálaráðuneytið gefur út reglugerð varðandi sveinspróf.

Umsjón