Umsókn í sveinspróf í rafvirkjun
Opið fyrir umsóknir til 30. nóvember 2026
24 dagar eftir til að sækja um. Prófin fara fram 8.–17. febrúar 2027.
Áður en þú sækir um
Farðu yfir atriðin hér að neðan og hakaðu við hvert þeirra. Hlekkurinn á umsóknina birtist þegar þú hefur hakað við þau öll.
Sótt er um á tveimur tímabilum:
Sveinspróf í febrúar: 1.–30. nóvember
Sveinspróf í júní: 1.–31. mars
Ekki er tekið við umsóknum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
Nemar sem ekki hafa gert formlegan námssamning eða lokið vinnustaðanámi samkvæmt eldra kerfi eiga að nýta sér rafræna ferilbók.
Áður en sveinspróf hefst þarf að vera búið að ljúka vinnustaðanámi samkvæmt rafrænni ferilbók.
Staðfestingu frá skóla um að rafrænni ferilbók sé lokið þarf að senda á sveinsprof@rafmennt.is.
Kynningarmyndbönd og aðrar upplýsingar um rafræna ferilbók á Ísland.is
Upplýsingar um ferilbók hjá Nemastofu
Nemar sem hafa nýtt sér rafræna ferilbók í vinnustaðanámi þurfa að skila eftirfarandi gögnum með umsókn:
Staðfesting meistara á vinnustaðanámi (eyðublað)
Afrit af brautskráningarskírteini úr skóla eða staðfesting frá skóla á útskrift á þessari önn.
Staðfesting á að nemi sé skráður í rafræna ferilbók (leiðbeiningar).
Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefsíðu Rafmenntar.
Vegna persónuverndar þarf próftaki sjálfur að senda inn umsókn í sveinspróf.
- Sækja um
Hakaðu við öll atriðin hér að ofan til að fá hlekkinn á umsóknina.
Umsjón
- Guðmundur S. JónssonUmsjón með sveinsprófum í rafiðngreinumgudmundur@rafmennt.is540 0160


