Fara beint í efni

Claude AI á Íslandi - Gerðu meira með gervigreind

AlmennH2026NUPTÆ08Claude AIVinsælt

Viltu nýta Claude gervigreind til að spara tíma, bæta gæði og auka framleiðni í starfi?

Lýsing

Á þessu hagnýta námskeiði lærir þú að nýta Claude frá Anthropic til að vinna hraðar og skilvirkar, bæta gæði verkefna og sjálfvirknivæða endurtekin verk. Þú lærir að vinna með eigin skjöl í Excel, Word og PowerPoint, útbúa kynningar og mælaborð ásamt því að sérsníða gervigreind að þínum verkefnum og vinnuferlum.

Með verklegum æfingum öðlast þú færni til að nýta gervigreind sjálfstætt og markvisst í daglegu starfi. Þú ferð af námskeiðinu með hagnýta þekkingu og verkfæri sem nýtast strax.

Námskeiðið er kennt á íslensku og fer fram á tveimur dögum, samtals sjö klukkustundir.

Kennari

  • Ari Auðunn Jónsson

    Ari Auðunn Jónsson er með vottanir frá Anthropic og Google og hefur unnið með Claude síðan 2024.

    Í daglegum störfum hjálpar hann litlum og meðalstórum fyrirtækjum að taka fyrstu skrefin í gervigreind — allt frá stefnumótun og innleiðingu yfir í sérsniðnar AI-lausnir, SaaS-kerfi og sjálfvirka agenta sem spara tíma og auka framleiðni.

    Sú reynsla er grunnurinn að námskeiðinu: hagnýt þekking sem nýtist strax í raunverulegum verkefnum.

Hópar og dagsetningar

Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.

  1. Hópur 429.–30. október · Fimmtudagur og föstudagurFullbókað
    Dagsetning
    29.–30. október · Fimmtudagur og föstudagur
    Tími
    kl. 09:30–12:30
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
  2. Hópur 5

    Dagsetning
    23.–24. nóvember · Mánudagur og þriðjudagur
    Tími
    kl. 09:00–12:30
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð79.900 kr.
RSÍ endurmenntun28.900 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →