Fara beint í efni

Hugmyndaforritun með gervigreind

AlmennH2026N · V2027NUPTÆ08VibeCode I

Á þessu námskeiði lærir þú að byggja eigið smáforrit með aðstoð gervigreindar

Lýsing

Villt þú að byggja eigið smáforrit (vefapp) með aðstoð gervigreindar – án þess að hafa áður skrifað eina línu af kóða.

Þú lærir að lýsa hugmynd í venjulegu máli, láta gervigreind byggja fyrstu útgáfu, prófa hana, bæta hana í skrefum og þróa verkefnið áfram frá fyrstu hugmynd að virku smáforriti.

Kennari

  • Stefán Gunnarsson

    Stefán, BSc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og stofnandi BrainBox. Hann hefur yfir áratuga reynslu sem frumkvöðull og stjórnandi í tæknigeiranum, meðal annars af hugbúnaðarþróun, vöruþróun og rekstri hugbúnaðarfyrirtækis. Á síðustu árum hefur hann sérhæft sig í innleiðingu gervigreindar hjá fyrirtækjum og stofnunum. Þar byggir hann upp örugg og skipulögð vinnuferli, tengir gervigreind við gögn og verkfæri og kennir fólki að fela henni verkefni undir eigin stjórn. Hann skrifar reglulega um þessi mál. Á námskeiðum sínum byggir Stefán á hagnýtri reynslu af vinnu með gervigreind, allt frá hugmyndaforritun (e. vibe coding) til erindreka sem vinna verkefni í mörgum skrefum.

Hópar og dagsetningar

Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    28. jan. – 4. feb. 2027 · Fimmtudagar
    Tími
    kl. 17:00–21:00
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
  2. Hópur 2

    Dagsetning
    18.–25. febrúar 2027 · Fimmtudagar
    Tími
    kl. 08:30–12:30
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð39.900 kr.
RSÍ endurmenntun14.500 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →