Námskeið í samstarfi við Rafport og Loxone

Áfangaheiti: FRLA32Loxone Partner

Loxone hússtjórnarkerfi – Uppsetning og forritun
Almennt verð
139.000 kr
RSÍ endurmenntun
99.000 kr

Skrá mig

Lýsing

Loxone er öflugt hússtjórnarkerfi sem nýtist til sjálfvirknivæðingar í íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og opinberum byggingum. Með kerfinu er hægt að samþætta lýsingu, hitun, gluggatjöld, loftræsingu, aðgangsstýringu, hljóðkerfi, orkustjórnun og fjölmörg önnur tæknikerfi í eina heildstæða lausn.

Á þessu fjögurra daga grunnnámskeiði fá þátttakendur hagnýta og verklega þjálfun í uppsetningu, forritun og gangsetningu Loxone kerfa. Unnið er með raunhæf verkefni þar sem þátttakendur setja upp kerfi frá grunni, forrita virkni og sannreyna lausnir í verklegu umhverfi.

Námskeiðið er kennt samkvæmt viðurkenndu kennsluefni Loxone og er ætlað þeim sem vilja öðlast traustan grunn til að vinna með kerfið í atvinnuskyni.

Markmið

Að námskeiði loknu geta þátttakendur:

  • Skilið uppbyggingu og virkni Loxone kerfisins.
  • Sett upp og tengt Loxone Miniserver og helstu stækkunareiningar.
  • Hannað og forritað grunnvirkni í Loxone Config.
  • Sett upp og stillt lýsingu, hitastýringu, gluggatjöld og orkustjórnun.
  • Unnið með inntök, úttök, skynjara og stýrieiningar.
  • Framkvæmt gangsetningu og grunnbilanagreiningu.
  • Undirbúið kerfi fyrir afhendingu til notenda.
Markhópur

Námskeiðið er ætlað:

  • Raf- og rafeindavirkjum.
  • Kerfishönnuðum.
  • Verk- og tæknifræðingum
  • Tæknimönnum sem starfa við hússtjórnarkerfi og sjálfvirknilausnir.
  • Öðrum sem vilja afla sér grunnþekkingar á Loxone.
Forkröfur

Æskilegt er að þátttakendur hafi:

  • Grunnþekkingu á raflögnum og rafkerfum.
  • Almenna tölvukunnáttu.
  • Grunnþekking á IP-netkerfum er kostur en ekki skilyrði.
Innihald

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

  • Uppbyggingu Loxone kerfisins.
  • Loxone Miniserver.
  • Extension- og Tree-einingar.
  • Air-einingar og þráðlaus samskipti.
  • Tengingu skynjara og stýribúnaðar.
  • Loxone Config.
  • Verklega forritun.
  • Lýsingarstýringar.
  • Hitastýringar.
  • Gluggatjöld og sjálfvirka skyggingu.
  • Orkustjórnun.
  • Tímastýringar og sjálfvirkni.
  • Aðgangsstýringar.
  • Loxone App og notendaviðmót.
  • Gangsetningu, prófanir og afhendingu kerfis.
  • Grunnbilanagreiningu.
  • Bestun aðferða við hönnun og uppsetningu.
Kennslufyrirkomulag

Kennslan byggir á fyrirlestrum, sýnikennslu og umfangsmiklum verklegum æfingum þar sem þátttakendur vinna sjálfir að uppsetningu og forritun kerfisins.

Námsmat

Ekki er um formlegt próf að ræða. Þátttakendur vinna verkleg verkefni sem byggja á því efni sem farið er yfir á námskeiðinu.

Námsgögn

Kennslugögn eru innifalin og þátttakendur fá aðgang að viðurkenndu kennsluefni frá Loxone. Í námsgjöldum er innifalin þátttaka í Foundation Training-grunnþjálfun Loxone, auk Demo Case — sýnikennslutösku með helsta búnaði.

Mælum með nemendur noti sínar eigin tölvur á námskeiðinu, nemendur þurfa að setja upp Loxone Config 17 sem nálgast má á eftirfarandi slóð: https://www.loxone.com/enus/support/downloads/
Rafmennt útvegar tölvu fyrir þá sem þess þurfa.

Viðurkenning

Við lok námskeiðs fá þátttakendur staðfestingu á þátttöku samkvæmt reglum Loxone og eiga kost að því að verða Silver Partner.

Myndband um Loxone Demo Case sem fylgir námskeiði

  28. september – 1. október 2026

  4 dagar – 32 klst.

  Rafmennt, Stórhöfða 27

  Alþjóðleg vottun frá Loxone

Dagskrá

Fjögurra daga námskeið með verklegum æfingum á kennslutösku.

  Mánudagurinn 28. september 08:30 – 16:30
  Þriðjudagurinn 29. september 08:30 – 16:30
  Miðvikudagurinn 30. september 08:30 – 16:30
  Fimmtudagurinn 1. október 08:30 – 16:30

Loxone Silver Partner vottun  

Að loknu námskeiði fá nemendur Silver Partner vottun frá Loxone sem veitir aðgengi að meira ítarefni um búnað og uppsetningar ásamt því að fá búnað á betri kjörum.

Athugasemdir

Þau sem eiga tösku og vilja fá Loxone Silver Partner vottun býðst námskeiðið á töluvert lægra verði eða frá 11.990 kr. Vinsamlegast hafið samband við Rafmennt ef svo ber við.


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð 139.000 kr
SART 125.000 kr
RSÍ endurmenntun 99.000 kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Flokkar: Almenn námskeið
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Drónaflug og myndvinnsla 01. okt. 2026 - 08. okt. 2026 Rafmennt ehf. 17:00 - 21:00 Stórhöfða 21 13.500 kr. Skráning