Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HRFjármálalæsi stuðlar að bættri ákvarðanatöku í fjármálum með áherslu á sparnað og fyrirhyggju. Þetta námskeið snýst um að þátttakendur öðlist yfirsýn yfir tekjur og gjöld til að auðvelda þeim að ná markmiðum sínum og uppfylla drauma.
Á þessu stafræna námskeiði um fjármál heimilsins er unnið með viðfangsefni sem hafa áhrif á heimilisbókhaldið út frá áhuga og þörfum hvers og eins.
Á námskeiðinu segja sérfræðingar frá og útskýra
Í hverjum kafla námskeiðsins segja sérfræðingar frá þeim lykilatriðum sem þarft er að kunna. Verkefni og æfingar tengdar hverju atriði eru síðan lagðar fyrir til að tryggja skilning á viðfangsefninu
Sérfræðingar á námskeiðinu koma frá lífeyrissjóðum, stéttarfélögum og Umboðsmanni skuldara. Þeir miðla af þekkingu sinni á tryggingum, verðbólgu og verðtryggingu.
Opni háskólinn í HR og Fjármálavit unnu saman að gerð námskeiðsins sem er öllum opið. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur auki fjármálalæsi sitt og geti þannig tekið upplýstari ákvarðanir í fjármálum, með áherslu á sparnað og fyrirhyggju.
Námskeiðið er eitt af þremur um Fjármálalæsi, en þau eru
Námskeiðin eru fyrir þau sem vilja auka skilning sinn á þessum viðfangsefnum. Þeim er ætlað að byggja upp þekkingu þátttakenda á þeim viðfangsefnum sem þeir þurfa helst að styrkja þekkingu sína í.
Hægt er að kaupa hvert námskeið stakt eða kaupa þau saman í braut.
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem hentar þeim.
Það er Kristján Arnarsson sem tekur á móti þátttakendum, segir frá skipulaginu og leiðir inn sérfræðingana sem segja frá og auka skilning okkar á ólíkum liðum í fjármálum heimila.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.
Fleiri námskeið í fjármálalæsi eru boði, Sparnaður og fjárfestingar, Lán og lánshæfi og svo er hægt að taka þau öll saman á hagstæðara verði
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
Fullt verð: 15.990 kr
RSÍ endurmenntun: 5.570 kr
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjármálalæsi - Fjármál heimilisins | 08. apr. 2026 - 26. jún. 2026 | Alltaf opið | 5.570 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050