Tillögur að vali í Meistaraskóla rafvirkja/Meistaraskóla rafeindavirkja

Áfangaheiti: HREK06Taxti


Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara og verktaka sem selja út efni, vinnu og tæki. Markmið þess er að kenna þátttakendum útreikning á nauðsynlegri álagningu á tilboðs- og tímavinnu.

Á námskeiðinu er stuðst við reiknilíkön í excel ásamt nýrri útgáfu af forritinu TAXTA. Með TAXTA IV er auðvelt að sjá m.a. hvort við erum með nægilega álagningu inni í útseldri vinnu, vélum og tækjum, hvort borgi sig að bæta við starfsfólki í stað eftirvinnu, hversu mikla fjárfestingu reksturinn ber, hvað þarf að rukka fyrir vinnutæki, vélar, vinnupallana, ekinn kílómetra fjölda o.s.frv. Þegar þátttakandi hefur slegið inn nokkrar tölur úr síðasta ársreikningi og skráð starfsmenn sína ásamt vélum sem hann vill verðleggja sérstaklega inn í TAXTA liggur niðurstaðan fyrir. 


Á námskeiðinu er kennd notkun á TAXTA ásamt reiknilíkönum í excel sem hvort tveggja er innifalið í námskeiðsgjaldinu.

Þátttakendur eiga að mæta með tölvu á námskeiðið.

Kennari er Eyjólfur Bjarnason.


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð: 26.500 -

SART: 22.525.-

RSÍ Endurmenntun: 9.275.-

Er í meistaraskóla: 5.300.-

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.


Flokkar: Almenn námskeið
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Raunkostnaður útseldrar vinnu 28. okt 2025 Eyjólfur Bjarnason 8:30 - 14:30 Stórhöfði 27 9.275 kr. Skráning