Kjarnanámskeið í Meistaraskóla rafvirkja/Meistaraskóla rafeindavirkja
Í áfanganum er m.a. fjallað um kerfishönnun, lagnir, frágang búnaðar, mælingar, skýrslugerð, staðla fjarskiptalagna í íbúðarhúsnæði, loftnetskerfi, netkerfi, símkerfi, hússtjórnarkerfi og búnað sem tilheyra notkun hans. Einnig er fjallað um val á fjarskiptakerfum og hvaða flutningsleiðir henta hverju verkefni.
Námskeiðið er opið þeim sem eru forvitnir um reglugerðir um fjarskiptalagnir og framtíðar sýn fjarskipta.
Athugið: Þátttakendur námskeiða sem að nota Teams fjarfundarbúnað þurfa að vera í mynd til þess að fá viðurkenningu að þeim loknum.
Forkröfur/undanfari:
Sveinspróf í rafiðngreinum
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
| Fullt verð | 31.200 |
| SART | 26.520 |
| RSÍ endurmenntun | 10.920 |
| Er í meistaraskóla | 6.240 |
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjarskiptakerfi - reglugerðir og staðlar | 22. apr 2026 | 08:30 - 16:30 | Stórhöfði / Teams | 10.920 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050