Námskeið 19. - 21. júní 2020

RAFMENNT og Dale Carnegie á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um námskeiðahald. Fyrsta námskeiðið sem við kynnum er 3ja daga útfærsla af hinu þekkta Dale Carnegie námskeiði þar sem þátttakendur vinna í samskiptum, styrkja sambönd, efla leiðtogahæfileika og tjáningu og læra að stjórna streitu og vinna undir álagi. Námskeiðið nýtist bæði í vinnu og einkalífi.

Samkomulagið gerir það að verkum að hægt er að bjóða félagsmönnum RSÍ og SART,  sem greitt er af í menntasjóð, námskeiðið á 45.000 en fullt verð er 159.000 kr.

Um námskeiðið: Með því að auka sjálfstraust og færni í samskiptum við aðra munt þú hafa þau áhrif sem þú þarft til að ná nýjum hæðum í leik og starfi. Þú verður meira sannfærandi í tjáskiptum og átt auðveldara með að takast á við breytingar, stjórna streitu og hafa hvetjandi áhrif á aðra. Dale Carnegie námskeiðið hjálpar þér að verða snillingur í mannlegum samskiptum. Það mun gera þér kleift að þrífast í hvaða umhverfi sem er og þú munt uppgötva hvernig á að mynda nánari og meira gefandi sambönd.

Það sem við förum yfir á námskeiðinu:

  • Stækka þægindahringinn og auka sjálfstraust
  • Rækta varanleg sambönd
  • Muna nöfn og nota þau
  • Veita öðrum innblástur
  • Kynna hugmyndir á skýran og hnitamiðaðan hátt
  • Takast á við ágreining á háttvísan máta
  • Nota sannfæringarkraft
  • Stjórna streitu og viðhorfi
  • Aðlaga okkur að mismunandi samskiptastílum
  • Sýna leiðtogafærni

 

Innifalið: Handbók, Gullna reglubókin, 30 daga áskrift hjá Storytel þar sem hægt er að hlusta á bækurnar Vinsældir og áhrif og Lífsgleði njóttu eftir Dale Carnegie á ensku. Útskriftarskírteini frá Dale Carnegie & Associates. Persónulegur aðgangur að þjálfara meðan á námskeiðinu stendur.

 

Nánar og skráning