Námskeiðið er útfærsla af hinu þekkta Dale Carnegie námskeiði þar sem þátttakendur vinna í samskiptum,
styrkja sambönd, efla leiðtogahæfileika og tjáningu og læra að stjórna streitu og vinna undir álagi.
Um er að ræða 3ja daga útgáfu af Dale Carnegie námskeiðinu sem er heill þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur
Með því að auka sjálfstraust og færni í samskiptum við aðra munt þú hafa þau áhrif sem þú þarft til að ná nýjum hæðum í leik og starfi. Þú verður meira sannfærandi í tjáskiptum og átt auðveldara með að takast á við breytingar, stjórna streitu og hafa hvetjandi áhrif á aðra. Dale Carnegie námskeiðið hjálpar þér að verða snillingur í mannlegum samskiptum. Það mun gera þér kleift að þrífast í hvaða umhverfi sem er og þú munt uppgötva hvernig á að mynda nánari og meira gefandi sambönd.
Alla sem vilja verða betri í starfi, auka lífsgæði sín og auka framtíðarmöguleika sína. Algengt er að stærri og smærri hópar frá fyrirtækjum sæki þessa þjálfun
Samkomulagið gerir það að verkum að hægt er að bjóða félagsmönnum RSÍ og SART, sem greitt er af í menntasjóð, námskeiðið á 44.520 kr en fullt verð er 159.000 kr. Þannig tryggir samningurinn félagsmönnum rúmlega 70% hagstæðara verð.
Fullt verð: 159.000 kr
Verð fyrir félagsmenn sem greitt er af í menntasjóð: 44.520 kr
Stórhöfða 27 - 110 Reykjavík - Sími: 540-0160 - rafmennt@rafmennt.is KT: 590104-2050