Kjarni

Tilgangur starfsins er að annast uppsetningu á sviði, sviðsmyndum og búnaði í leikhúsum, á tónleikum og öðrum viðburðum á sviði þannig að verkið sé unnið af fagmennsku, öryggi, nákvæmni og að öryggisreglum sé ávallt fylgt. Starfið felst í uppsetningu og frágangi sviðs, sviðsmynda og öðrum búnaði ásamt tilfærslu sviðsmynda, milli atriða, á viðburðum og æfingum. Tryggja skal að umgjörð og ásýnd sviðsins sé eins og til er ætlast og að allur búnaður sé á réttum stað á réttum
tíma.

Unnið er með listrænni stjórn, flytjendum og öðrum deildum bæði sjálfstætt sem og í teymi. Starfið krefst samstarfsfærni, nákvæmra vinnubragða og lausnamiðaðrar nálgunar. Lykilatriði er að hafa skilning á framkvæmd viðburðar sem heild og geta brugðist hratt og faglega við breytingum og óvæntum uppákomum. Notuð eru verkfæri og stundum minni vinnuvélar í starfinu. Vinnuaðstæður geta verið krefjandi og krafist líkamslegs þols. Vinna getur farið fram í myrkri, hávaða, mikilli hæð eða lágri lofthæð, undir tímapressu, á óreglulegum vinnutíma og/eða með
þungan búnað.

Hæfniþættir sem birtir eru í starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun. 

 

Starfaprófíll - Uppsetning á sviðið og sviðsbúnaði

Matslisti - Uppsetning á sviðið og sviðsbúnaði


 

 

Viðfangsefni

Undirbúningur
• Upplýsingafundur- farið yfir verkefni dagsins
• Koma sviðsmynd og pöllum í rétta stöðu
• Æfingar á hreyfingum sviðsmynda á sviði
• Æfingar á notkun sviðsbúnaðar
• Flytja sviðmynd og annan búnað úr/í geymslu
• Greina og finna lausnir á viðfangsefnum við uppsetningu sviðs, sviðsmynda, -búnaðar
• Útbúa keyrslulista
• Merkja staðsetningar sviðsmyndar á sviði

Öryggi og viðhald
• Fara yfir öryggisatriði viðburðar/sýningar
• Ráðstafanir til að draga út fallhættu
• Viðhald á sviðspöllum
• Viðhald og skoðun á sviðsbúnaði
• Bregðast við neyðarástandi
• Tryggja aðgang að flóttaleiðum
• Viðhald á sviðsmynd
• Þekkja og fara eftir öryggisreglum viðburðarhúss

Uppsetning og keyrsla á viðburðum/sýningum
• Innstilling sviðs miðað við forstillingarlista
• Yfirfara festingar
• Yfirfara merkingar
• Bregðast við óvæntum uppákomum og eða breytingum í keyrslu/uppsetningu
• Skiptingar milli atriða í viðburði/sýningu
• Stýra hreyfanlegum búnaði og sviðsmyndum
• Flytja sviðmynd og annan búnað úr/ í baksvið

Reglubundin verkefni og frágangur í viðburðahúsi

• Samvinna við aðrar deildir
• Miðlun upplýsinga innan/ utan deildar
• Frágangur og tiltekt eftir æfingar/viðburði/sýningar
• Þrif á sviðum
• Förgun sviðsmynda og búnaðar
• Endurnýting sviðsmynda og búnaður
• Yfirferð birgða
• Innheimta verkfæra