
Tilgangur starfsins er að sinna daglegri þjónustu við notendur, bilanagreiningu, uppsetningu og viðhaldi tölvu- og upplýsingatæknibúnaðar. Þekkja til og þjónusta kerfisinnviði. Tryggja öruggan og stöðugan rekstur upplýsingatæknikerfa. Starfið er framlínustarf og krefst skjótra faglegra viðbragða, samskiptahæfni, þjónustulundar, öryggisvitundar og trúnaðar. Í starfinu getur falist ráðgjöf til viðskiptavina varðandi upplýsingatækni, tækni- eða tækjakaup og áætlanagerð.
Unnið er almennt einslega og sjálfstætt að lausnum. Leitað leiðsagnar / aðstoðar vegna sértækra vandamála fyrir utan starfssvið þegar við á og / eða vísað verkefnum áfram. Ekki er um mannaforráð að ræða.
Vinnuaðstæður geta verið breytilegar, í fjarþjónustu eða á vettvangi. Vettvangur getur verið margvíslegur, á skrifstofum fyrirtækja, iðnaðar- eða þjónusturýmum. Viðvera eða viðbragð utan hefðbundins vinnutíma getur verið nauðsynleg.
Þörf er á þekkingu á upplýsingatæknikerfum, netkerfum, kerfisstjórnun og öryggismálum. Æskilegt er að hafa þekkingu til að skjala atvik. Mikilvægt er að vera meðvitaður um ólík regluverk og upplýsingaöryggi vinnustaðar og þjónustukaupa, ásamt því að halda trúnaði gagnvart viðkvæmum upplýsingum notendum og kerfa.
Hæfniþættir sem birtir eru í starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.
Starfaprófíll - Umsjón tölvu- og upplýsingatækni
Matslisti - Umsjón tölvu- og upplýsingatækni
Skjölun
- kerfa
- verklýsinga
- búnaðar
- aðgangsréttinda (notenda og kerfa)
- gerð leiðbeininga
- teikninga (af kerfum)
- eignaskráninga
Þjónusta
- Aðstoð við notendur / viðskiptavini á stað eða fjar
- Samskipti við birgja
- Samskipti við utanaðkomandi þjónustuaðila
- Tæknileg aðstoð við fundahald
- Tæknileg aðstoð við fyrirlestur
- Stuðningur við hugbúnaðar- og tæknilausnir
- Bráðatilvik
- Miðlun tæknilegra upplýsinga
- Leiðbeina/fræða notendur
- Veita ráðgjöf um kaup á kerfis-, hug- og vélbúnaði
- Virða næmni og trúnað gagnvart upplýsingum/viðskiptavinum/notendum
Öryggi og aðgangsstýring
- Öryggisuppfærslur á kerfis-. hug- og vélbúnaði
- Framkvæmd öryggisathugana
- Eftirlit með notendaöryggi
- Aðgangsstýring
- Eftirlit með hugbúnaðarleyfum
- Almenn öryggisvitund
- Upplýsa notendur um öryggisógnir
Uppsetning, rekstur og viðhald tölvukerfa
- Staða sjálfvirkniþjónustu
- Utanumhald uppfærslna á hugbúnaði
- Fylgja vinnuferlum
- Fara yfir afritunarmál
- Fylgjast með gagnarýmd
- Fyrirbyggjandi viðhald jaðartækja
- Bilanagreining
- Standsetning jaðartækja og útstöðva
- Styðja við útleiðingar og innleiðingar
- Stuðningur við rekstur tæknilausna
Forgangsröðun og skipulag
- verkefna
- verkbeiðna
- Kostnaðarvitund í verkefnum
- Innanhúss fundir
- Skráning verkefna / vinnustunda
- erinda / fyrirspurna
- bráðaatvika
Fræðsla og símenntun
- Sí- / endurmenntun
- Námskeið og ráðstefnur
- Leita upplýsinga (gervigreind, innri kerfi o.fl.)
- Þekking á innri kerfum og verkferlum
- Fyrirbyggjandi vinnubrögð
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050