
Tilgangur starfsins er myndataka fyrir sjónvarp og aðra miðla. Greining á hvaða búnaðar er þörf fyrir hvert verkefni og hverjar vinnuaðstæður eru. Tökur fara fram inni sem og úti. Ítarleg þekking á verkferlinu svo efnið skili sér í réttum gæðum og öryggi við tökur sé eins mikið og mögulegt er. Starfið felur í sér verkefni sem ýmist er sinnt sjálfstætt eða í samstarfi við tækni- og dagskrárgerðarfólk á tökustað og í undirbúningi fyrir tökur. Unnið er með framleiðslu til að ákvarða hvað skal mynda og myndlegum úrlausnum með samstarfsfólki.
Starfið krefst þekkingar á myndvinnslu, lýsingu og hljóðupptöku auk þekkingar á tækjabúnaði, tækni því tengdu og þróun þess. Velur og stjórnar tækjum sem þarf til að besta mögulega mynd náist. Vinnan getur falið í sér gagnaöflun sem nýtist til að skýra/skreyta frásögn eða atburði og safna heimildum til varðveislu. Starfið krefst viðbragðsflýtis og lausnamiðaðra vinnubragða til að grípa augnablikið í mynd. Vinnuaðstæður geta verið krefjandi með tilliti til veðurs og umhverfisþátta.
Hæfniþættir sem birtir eru í starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun. Starfið er á hæfniþrepi 3.
Undirbúningur verkefnis/forvinna
- Yfirferð verkefnis með samstarfsfólki
- Skoða dagskrá
- Hugmyndavinna
- Áætla magn myndefnis
- Tökuplan
- Kynna sér vettvang
- Mat á áhættu í verkefni
- Æfingar með eða án myndatöku
Tæknilegur undirbúningur
- Yfirferð og samantekt á tækjum og tólum í samræmi við verkefni
- Koma tæknibúnaði á tökustað
- Setja upp tækjabúnað
- Tæknirennsli
- Áætla gagnaþörf verkefnis (rafhlöðu)
- Tryggja öryggi þannig að tæki og tól skapi ekki hættu á tökustað
Upptökur (verkefnið)
- Fréttir/Þáttagerð/Leikið efni/Íþróttir
- Útsendingarbíll
- Viðfangsefni líðandi stundar
- Tökur með flygildi (dróna)
- Í myndveri
- Á vettvangi (inni eða úti)
- Stýra einni myndavél
- Fjölmyndavélavinnsla
- Stilling skerpu / Römmun á mynd
- Lýsing
- Samvinna við: framleiðendur, þáttastjórnendur og/eða leikstjóra
- Vinnur með fréttastjóra og fréttamanni
Gæðaeftirlit
- Regluleg yfirferð á tækjum og efni á meðan upptöku stendur
- Vakandi fyrir tækninýjungum og þróun
- Tilkynna bilanir á tækjum
- Eftirfylgd með gæðum efnis með tilliti til litgreiningar
Frágangur
- Ganga frá tækjum
- Skila myndefni
- Kanna stöðu tækja
- Hlaða batterý
- Þrif
*viðfangsefnin hér að ofan eru rakin í styttra máli en í starfaprófíl.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050