Námssamningar
Nemar í rafvélavirkjun og rafveituvirkjun, og nemar sem hófu nám fyrir ágúst 2021, gera námssamninga í sínu vinnustaðanámi.
Umsókn um gerð námssamnings
Fylgiskjöl með umsóknum um námssamninga:
Námsferilsyfirlit
Greiðsluyfirlit frá lífeyrissjóði
Umsóknirnar eru Word-skjöl (.docx). Best er að fylla þær út og senda í tölvupósti til Rafmenntar. Mögulegt er að senda umsóknina inn rafrænt og láta tölvupóstinn teljast sem undirskrift nemanda.
Reglugerðir
Menntamálaráðuneytið setur reglugerðir um námssamninga og starfsþjálfun. Í reglugerðum þessum er fjallað um skyldur samningsaðila og þau skilyrði sem uppfylla þarf til að taka að sér kennslu nema á vinnustað og framkvæmd sveinsprófa.
Menntamálaráðuneytið, Rafmennt og sveinsprófsnefndir í rafiðnaði hafa gert með sér samning vegna umsýslu námssamninga í rafiðngreinum og sveinsprófa. Í samningi þessum er Rafmennt falin umsýsla sveinsprófa og eftirlit með gerð og framkvæmd námssamninga í rafiðngreinum. Þangað skulu öll erindi er varða nýja námssamninga berast, óskir um breytingar á námssamningum og umsóknir um sveinspróf.
Umsjón
- Alma Sif KristjánsdóttirUmsjón með náms- og starfsþjálfunarsamningumalmasif@rafmennt.is


