Fara beint í efni

Rafræn ferilbók

Rafræn ferilbók er rafræn skráning um framvindu náms og námsferil nemanda á vinnustað þar sem hæfni nemanda er staðfest af umsjónarmönnum skóla og tilsjónarmanni vinnustaðar. Í rafrænni ferilbók eru hæfniþættir skilgreindir sem verkflokkar og verkþættir.

Framhaldsskólar sjá um gerð og staðfestingu á ferilbókum og hafa eftirlit með þeim.

Fyrir nema

Nemi hefur samband við þann skóla sem hann er skráður í eða útskrifaðist frá til að stofna rafræna ferilbók. Þar er stofnaður samningur um vinnustaðanám á milli skólans, nemandans og fyrirtækisins. Fyrirtækið verður að vera skráð í Birtingarskrá svo mögulegt sé að tengja nemandann og fyrirtækið saman í gegnum rafræna ferilbók.

Fyrir meistara

Fyrsta sem meistari þarf að gera til að hefja vinnu í rafrænni ferilbók er að skrá sig í Birtingarskrá. Þar þarf að skrá sig inn með íslykli fyrirtækisins og setja inn upplýsingar um meistara, meistarabréf og fyrirtæki.

Ef meistari eða fyrirtæki lendir í vandræðum með að skrá sig í Birtingarskrá er hægt að hafa samband við Nemastofu (nemastofa@nemastofa.is) til að fá aðstoð.

Styrkir til rafverktaka

Styrkir til rafverktaka sem taka nemendur á samning eru í gegnum Vinnustaðanámssjóð. Sótt er um einu sinni á ári í lok árs. Nánar hér.

Umsjón