Fara beint í efni

Aðstoð við leit að vinnustaðanámi

Fyrir nema

Ef nemendur þurfa aðstoð við að finna fyrirtæki eða einstaklinga sem hafa rétt til að taka að sér nema í vinnustaðanám er mögulegt að fylla út umsóknareyðublað. Gott er að senda ferilskrá með.

Gott er að athuga hvort starfsauglýsingar frá fyrirtækjum séu á vef alfred.is, þar má oft sjá auglýstar iðnnemastöður frá fyrirtækjum.

Fyrir meistara og fyrirtæki

Meistarar og fyrirtæki sem eru að leita að nemum í vinnustaðanám geta haft samband við Ölmu Sif, náms- og starfsráðgjafa.

Umsjón

  • Alma Sif KristjánsdóttirNáms- og starfsráðgjafi, umsjón með aðstoð við leit að vinnustaðanámialmasif@rafmennt.is