Xabier Þór Tejero Landa gat ekki verið viðstaddur afhendingu sveinsbréfa á Hilton Reykjavík Nordica 18. september. Hann kom því við á skrifstofu Rafmenntar til að sækja sveinsbréfið og viðurkenningarnar sínar.
Árangur Xabiers á sveinsprófi í rafeindavirkjun var framúrskarandi. Hann hlaut viðurkenningu fyrir bestan árangur bæði á skriflegu og verklegu prófi, auk viðurkenningar fyrir besta heildarárangur. Þar með hlaut hann allar þrjár viðurkenningarnar sem veittar voru í rafeindavirkjun að þessu sinni.
Viðurkenningar fyrir bestan árangur á skriflegu og verklegu prófi voru veittar fyrir hönd Félags rafeindavirkja. Viðurkenning fyrir besta heildarárangur var veitt fyrir hönd SART – Samtaka rafverktaka.
Rafmennt óskar Xabier innilega til hamingju með glæsilegan árangur og velfarnaðar í störfum sínum.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050