Rafmennt verður með bás á UTmessunni 2026 þann 6. og 7. febrúar, þar sem við kynnum starfsemi okkar og þau tækifæri sem standa til boða í námi og fræðslu innan raf- og tæknigreina.
Starfsfólk Rafmenntar verður á staðnum og veitir almenna kynningu á starfsemi Rafmenntar, námsumhverfi og fræðslumöguleikum. Gestir eru velkomnir að kíkja við og kynna sér hvað Rafmennt stendur fyrir.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050