Sýningin Verk og vit verður haldin í Laugardalshöll dagana 19.–22. mars 2026. Þar koma saman fyrirtæki, fagfólk og áhugafólk um nýjungar í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og tengdum greinum.
Á sýningunni gefst tækifæri til að kynna sér nýjustu lausnir, vörur og þjónustu á sviði iðnaðar og tækni.
Rafmennt verður með bás á svæðinu og bjóðum við gesti velkomna að koma við, kynna sér fræðslu og ræða tækifæri til náms og starfsþróunar í raf- og tækniiðnaði.
Opnunartímar:
| Fimmtudagur, 19. mars | 16:00 - 20:00 | Fagaðilar |
| Föstudagur, 20 mars | 10:00 - 19:00 | Fagaðilar |
| Laugardagur, 21. mars | 11:00 - 17:00 | Almennir gestir |
| Sunnudagur, 22. mars | 12:00 - 17:00 | Almennir gestir |
Aðgöngumiði fyrir fagaðila kr. 4.500.-
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050