Þór Pálsson framkvæmdastjóri og skólameistari Rafmenntar afhenti nýnemum FSU vinnubuxur.
Þór Pálsson framkvæmdastjóri og skólameistari Rafmenntar afhenti nýnemum FSU vinnubuxur.

Þór Pálsson heimsótti nýverið Fjölbrautaskóla Suðurlands og afhenti nýnemum í rafvirkjun vinnubuxur til að styðja við fyrstu skrefin í náminu. Nemendur tóku gjöfinni fagnandi og sögðust hlakka til að nota buxurnar í verklegum tímum. Nýnemagjöfin er orðin kærkominn liður í stuðningi Rafmenntar við ungt fólk sem velur sér rafiðnir.