Hingað til var ekki hægt að afrita tengil beint inn á ákveðna möppu. Nú fær hver mappa eigin slóð, til dæmis rafbok.is/folder/0B6c…MEk, sem má setja í bókamerki eða til að deila.
Leitin virkar ekki aðeins til að leita í öllu safninu, heldur getur þú núna leitað í þeirri möppu sem þú ert í og birtast þá allar skrár og undirmöppur hennar. Á forsíðu leitar hún eins og áður í öllu safninu.
Leitarorðið fer í slóðina (?q=tnt) svo leit má vista og deila alveg eins og möppu.
Undir hverri niðurstöðu stendur í hvaða möppu skjalið er; í Tölvur og nettækni PDF .
Nú höfum við bætt við innbyggðum lesara og opnast því skjölin inni á rafbok.is/ í stað inni á Google Drive.
Ef þú opnar tengil á möppu eða hefti án þess að vera skráð(ur) inn, ferðu á innskráningu og svo beint þangað sem þú ætlaðir. Áður endaði maður alltaf á forsíðu.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050