Náðu betri tökum á þráðlausum netkerfum með Unifi-WIFI námskeiðinu 13. -15. maí!

Þráðlaus netkerfi gegna sífellt stærra hlutverki í daglegum rekstri fyrirtækja og heimila. Kröfur um hraða, stöðugleika og öryggi aukast stöðugt og þar skiptir rétt hönnun og uppsetning sköpum.

Rafmennt býður nú upp á hagnýtt námskeið í Unifi-WIFI þar sem þátttakendur fá innsýn í hvernig byggja má upp og reka nútímaleg þráðlaus netkerfi með faglegum hætti.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á:

  • hvernig á að skipuleggja og setja upp netkerfi sem virkar í raunverulegum aðstæðum
  • hvernig hægt er að fylgjast með, stýra og hámarka afköst kerfa
  • hvernig nýta má skýjalausnir og stjórnunartól til að einfalda rekstur

Þessi þekking nýtist beint í starfi – hvort sem unnið er við uppsetningar, þjónustu eða rekstur netkerfa.

Námskeiðið hentar sérstaklega rafiðnaðar-og tæknifólki sem vill efla færni sína á sviði netkerfa og auka virði sitt á vinnumarkaði.

👉 Nokkur sæti laus!