Þór Pálsson framkvæmdastjóri og skólameistari Rafmennt l.t.v. ásamt nýnemum í VA og Hildi Dröfn kenn…
Þór Pálsson framkvæmdastjóri og skólameistari Rafmennt l.t.v. ásamt nýnemum í VA og Hildi Dröfn kennara l.t.h.

Nemendur í rafiðngreinum við Verkmenntaskóla Austurlands fengu nýlega afhentar vinnubuxur frá Rafmennt. Markmið gjafarinnar er að styðja við nýnema í faginu og útvega þeim hagnýtan fatnað sem nýtist strax í verklegum áföngum. Buxurnar hafa notið mikilla vinsælda meðal nemenda og reynst traustur búnaður í daglegu námi.