Sýningin Verk og vit verður haldin í Laugardalshöll dagana 19.–22. mars 2026. Þar koma saman fyrirtæki, fagfólk og áhugafólk um nýjungar í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og tengdum greinum.

Á sýningunni gefst tækifæri til að kynna sér nýjustu lausnir, vörur og þjónustu á sviði iðnaðar og tækni.

Rafmennt verður með bás á svæðinu og bjóðum við gesti velkomna að koma við, kynna sér fræðslu og ræða tækifæri til náms og starfsþróunar í raf- og tækniiðnaði.


Opnunartímar:

Fimmtudagur, 19. mars 16:00 - 20:00  Fagaðilar
Föstudagur, 20 mars 10:00 - 19:00  Fagaðilar
Laugardagur, 21. mars 11:00 - 17:00  Almennir gestir
Sunnudagur, 22. mars 12:00 - 17:00  Almennir gestir

 

FAGAÐILA MIÐI – gildir alla sýninguna:

Aðgöngumiði fyrir fagaðila kr. 4.500.-

 
DAGPASSI – gildir valinn dag - 21. eða 22. mars:

Dagpassi kr. 2.500.-