Fræðslufundur um dróna og notagildi þeirra, sem haldinn var hjá Rafmennt tókst afar vel. Fundurinn var vel sóttur og greinilegur áhugi meðal þátttakenda á þeirri tækniþróun sem á sér stað á þessu sviði.

Erindi flutti Björn Steinbekk sem fjallaði um þróun drónatækninnar, helstu notkunarmöguleika og þau tækifæri sem felast í notkun dróna í atvinnulífi og við sérhæfð verkefni. Þá var einnig farið yfir reglugerðir, öryggismál og ábyrgð sem fylgir notkun dróna.

Líflegar umræður sköpuðust að loknu erindi þar sem þátttakendur deildu reynslu og spurðu spurninga. Ljóst er að drónar eru orðnir mikilvægt verkfæri á mörgum sviðum og þróunin heldur áfram hratt.

Hér má sjá upptöku af fundinum!

Rafmennt þakkar öllum sem tóku þátt og hlakkar til að halda áfram að bjóða upp á fræðslu um nýja og spennandi tækni.

Í framhaldi af fundinum viljum við einnig minna á námskeiðið Drónaflug og myndvinnsla hjá Rafmennt þar sem farið er ítarlega yfir notkun dróna, flugreglur, öryggismál og vinnslu myndefnis.