🔹 Rúnar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Tengli ehf.
🔹 Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra…
🔹 Rúnar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Tengli ehf. 🔹 Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra og meðstofnandi Alor ehf. 🔹 Óskar Frank Guðmundsson, sérfræðingur í rafmagnsöryggi hjá HMS.

Tækifæri í framleiðslu og geymslu birtuorku á Íslandi

Samtök rafverktaka, Sart, bjóða áhugafólki um birtuorku á fræðslufund.

Fimmtudaginn 9. október kl. 12:00-13:00
Fundarstaður er Rafmennt, Stórhöfða 27, Reykjavík
Húsið opnar kl. 11:30 og boðið verður upp á matarmikla súpu fyrir fundargesti

Á fundinum verður farið yfir m.a.:

· Fýsileika þess að virkja og geyma birtuorku við íslenskar aðstæður

· Tæknileg atriði sem hafa þarf í huga

· Sölu birtuorku og leyfismál

· Gagnaskil og reglur HMS og veitufyrirtækja

Dagskrá
🔹 Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra og meðstofnandi Alor ehf.
🔹 Rúnar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Tengli ehf.
🔹 Óskar Frank Guðmundsson, sérfræðingur í rafmagnsöryggi hjá HMS.

Skráning er nauðsynlegSmelltu hér til að tryggja þér sæti

Fundinum verður einnig streymt í beinni fyrir þá sem ekki komast á staðinn, hlekk á streymið verður deilt á fundardegi til þeirra sem merkja við streymi í skráningunni.

Fræðslufundurinn er kjörið tækifæri fyrir löggilta rafverktaka, frumkvöðla, stefnumótendur og aðra áhugasama um endurnýjanlega orkukosti og nýsköpun. Með því að miðla þekkingu og stuðla að umræðu um nýjar lausnir í orkumálum styðja Samtök rafverktaka við uppbyggingu sjálfbærs og framsýns iðnaðarumhverfis á Íslandi.