Ólafur Steingrímsson
Ólafur Steingrímsson

Rafmennt býður upp á nýtt hagnýtt námskeið sem veitir þátttakendum heildstæða innsýn í tilboðsgerð í opinberum útboðum – frá auglýsingu útboðs til samningsgerðar.

Námskeiðið „Tilboðsgerð í opinberum útboðum“ er ætlað rafiðnaðar- og tæknifólki og öllum sem koma að undirbúningi og skilum tilboða í opinber verkefni. Lögð er áhersla á að efla skilning á útboðsferlinu og styrkja hæfni þátttakenda til að vinna fagleg og samkeppnishæf tilboð.

Farið verður yfir helstu þætti opinberra útboða, þar á meðal lestur og túlkun útboðsgagna, hæfiskröfur og mismunandi matsforsendur. Þátttakendur fá þannig betri yfirsýn yfir kröfur verkkaupa og hvernig best er að bregðast við þeim í tilboðsgerð.

Námskeiðið byggir á hagnýtri nálgun þar sem markmiðið er að tengja fræðilega þekkingu við raunveruleg verkefni. Slík þekking er lykilatriði í opinberum innkaupum þar sem gera þarf skýrar kröfur, fylgja regluverki og tryggja jafnræði og gagnsæi í ferlinu.

Námskeiðið fer fram 21. apríl og er kennt í staðnámi.

Kennari námskeiðsins er Ólafur Steingrímsson starfandi skrifstofustjóri hjá innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar (nú Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar). Ólafur hefur 12 ára reynslu af opinberum innkaupum og þar áður reynslu sem innkaupastjóri á einkamarkaðnum. Ólafur hefur starfað sem ráðgjafi á sviði útboðsmála og sérhæfir sig í rýni útboðsgagna og gerð matslíkana.

Nánar um námskeiðið hér!