Námskeiðið veitir hagnýta innsýn í opinbert útboðsferli frá auglýsingu til samningsgerðar, með áherslu á lestur og skilning útboðsgagna, hæfiskröfur og mismunandi matsforsendur. Þátttakendur læra að greina lágmarkskröfur, forðast algeng mistök í tilboðsgerð og gagnaskilum, móta markvissar fyrirspurnir og bregðast við óskýrleika í skilmálum. Námskeiðið hentar þeim sem koma að gerð tilboða í útboðum og vilja auka líkur á gildum og samkeppnishæfum tilboðum.

Kennari námskeiðsins er Ólafur Steingrímsson starfandi skrifstofustjóri hjá innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar (nú Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar). Ólafur hefur 12 ára reynslu af opinberum innkaupum og þar áður reynslu sem innkaupastjóri á einkamarkaðnum. Ólafur hefur starfað sem ráðgjafi á sviði útboðsmála og sérhæfir sig í rýni útboðsgagna og gerð matslíkana.
Þátttakendur komi með fartölvur á námskeiðið og jafnvel útboðslýsingar sem þeir hafa áskotnast frá eldri verkefnum.
Námskeiðinu líkur með stuttu verkefni sem metið er til einkunnar.
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
Fullt verð: 31.200.- kr
RSÍ Endurmenntun: 10.920.- kr
Skrái þátttakandi sig af námskeiði með minna en 2 vikna fyrirvara áskilur Rafmennt sér rétt til innheimtu 50% námskeiðsgjalds.
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Tilboðsgerð í opinberum útboðum | 21. apr. 2026 | Ólafur Steingrímsson | 09:00 - 14:00 | Stórhöfði 27 | 10.920 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050