Rafmennt afhendir sveinsbréf í rafiðngreinum við tvær hátíðlegar athafnir í september, í Reykjavík og á Akureyri.
Nýsveinar að þessu sinni eru 121 talsins og skiptast eftir greinum sem hér segir:
Afhending sveinsbréfa er mikilvægur áfangi í námi fagfólks í rafiðnaði og markar formleg lok sveinsnáms. Viðburðurinn er jafnframt tilefni til að fagna árangri nýsveina og þeirri fagmennsku sem þeir færa með sér inn í atvinnulífið.
Dagskráin verður að vanda með ræðuhöldum og afhendingu viðurkenninga fyrir góðan árangur á sveinsprófi.
Rafmennt óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og hlakkar til að fagna með þeim.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050