Föstudaginn 18. september fór fram hátíðleg athöfn á Hilton Reykjavík Nordica þar sem 98 nýsveinum í rafiðngreinum voru afhent sveinsbréf. Skiptingin eftir greinum var eftirfarandi:
Alls ljúka 121 nýsveinar sveinsnámi í september. Síðari afhendingin fer fram í Hofi á Akureyri föstudaginn 25. september. Þar taka 19 rafvirkjar og 4 rafeindavirkjar við sveinsbréfum sínum.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur
Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur á sveinsprófi.
Andri Reyr Haraldsson, formaður FÍR – Félags íslenskra rafvirkja, afhenti viðurkenningar fyrir hönd félagsins. Konráð Karl Kristjánsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á skriflegu sveinsprófi í rafvirkjun. Alex Andri Jónsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á verklegu prófi.
Ármann Guðmundsson, formaður Félags rafeindavirkja, afhenti viðurkenningar fyrir hönd félagsins. Xabier Þór Tejero Landa hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur bæði á skriflegu og verklegu sveinsprófi í rafeindavirkjun.
Pétur Hákon Halldórsson, formaður SART – Samtaka rafverktaka, afhenti viðurkenningar fyrir hönd samtakanna fyrir heildarárangur á sveinsprófi. Í rafvirkjun voru Arnar Flókason og Brynjar Snær Ísfeld Erlendsson hnífjafnir og hlutu því báðir viðurkenningu. Í rafeindavirkjun hlaut Xabier Þór Tejero Landa viðurkenninguna. Hann hlaut þar með allar þrjár viðurkenningarnar sem veittar voru í rafeindavirkjun.
Afhending sveinsbréfa er mikilvægur áfangi í námi fagfólks í rafiðnaði og markar formleg lok sveinsnáms. Rafmennt óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í störfum sínum.
Myndir frá athöfninni má nálgast á Flickr-síðu Rafmenntar.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050