Föstudaginn 25. september fór fram hátíðleg athöfn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þar sem nýsveinum í rafiðngreinum voru afhent sveinsbréf. Alls tóku 23 nýsveinar við bréfum sínum:
Meirihluti rafvirkjanna og allir rafeindavirkjarnir luku námi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Athöfnin á Akureyri var síðari afhending sveinsbréfa í september. Viku áður, föstudaginn 18. september, tóku 98 nýsveinar við sveinsbréfum sínum á Hilton Reykjavík Nordica. Alls hafa því 121 nýsveinar lokið sveinsnámi í rafiðngreinum í september: 109 rafvirkjar, 5 rafveituvirkjar og 7 rafeindavirkjar.
Sautján ára nýsveinn
Í hópi nýsveina í rafvirkjun var Ómar Magni Halldórsson, sem er aðeins sautján ára gamall. Eftir því sem best er vitað er hann yngsti rafvirkinn hér á landi sem hefur hlotið sveinsbréf í faginu.
Ómar Magni hóf nám í rafvirkjun í VMA haustið 2023, þá tæplega fimmtán ára. Meðfram náminu starfaði hann í faginu og vann markvisst að því að ljúka þeim verkþáttum sem ferilbókin krefst. Hann brautskráðist frá VMA síðastliðið vor og þreytti sveinspróf í rafvirkjun í júní, aðeins nokkrum dögum eftir brautskráninguna. Ómar Magni býr á Svalbarðseyri og starfar hjá Rafeyri á Akureyri.
Árangur Ómars Magna sýnir vel hvað hægt er að ná langt með skýru markmiði og góðum stuðningi skóla og vinnustaðar. Hann er jafnframt hvatning fyrir ungt fólk sem íhugar nám í rafiðngreinum.
Afhending sveinsbréfa er mikilvægur áfangi í námi fagfólks í rafiðnaði og markar formleg lok sveinsnáms. Rafmennt óskar Ómari Magna og öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í störfum sínum.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050