Kjarnanámskeið í Meistaraskóla rafvirkja

Spennujafnanir og jarðtengingar lágspennu og smáspennukerfa (MJAR4MS01) - 1 eining

Í áfanganum er fjallað um uppbyggingu jarðtengikerfa og þýðingu þeirra við truflanavarnir í lág- og smáspennukerfum. Farið er yfir helstu atriði við jarðtengingar smáspennukerfa í byggingum og vinnubrögð við uppbyggingu þeirra, efnisval  og áhrif þess á jarðtengingar og truflanir. Þá er farið yfir ástæður truflana og varnir gegn þeim, m.a. flökkustrauma.

Kynnt er innihald nokkurra staðla og handbóka varðandi uppbyggingu lág- og smáspennukerfa.

Námskeið sem kennt er 10. mars verður aðeins í fjarkennslu sem fer fram í rauntíma í gegnum fjarfundarbúnað (Teams)

 


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð: 31.200 -

SART: 26.520.-

RSÍ Endurmenntun: 10.920.-

Er í meistaraskóla: 6.240.-

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.


Flokkar: Meistaraskóli rafvirkja