Stórsýning Verk og vit verður haldin í fimmta sinn dagana 24. - 27. mars 2022 í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Verk og vit er frábær vettvangur til að kynna sér allt það nýjasta í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum ásamt því að kynna sér spenanndi vörur og þjónustu. 

RAFMENNT verður á staðnum með bás og hvetjum við alla félagsmenn til að mæta. 

Opnunartímar:

  Fagaðilar Almennir gestir
Fimmtudagur 24. mars Kl: 17:00 - 21:00   
Föstudagur 25. mars Kl: 11:00 - 19:00  
Laugardagur 26. mars Kl: 11:00 - 17:00 Kl: 11:00 - 17:00
Sunnudagur 27. mars Kl: 12:00 - 17:00 Kl: 12:00 - 17:00

 

Verð aðgöngumiða:

Fagaðilar (gildir alla sýningardagana): 3500 kr

Almennir gestir: 1750 kr

Miðasala á verkogvit.is, tix.is og við innganginn