Rafmagnsöryggi um jólin
            			
				
					
													
	
        
		
	
			
					05.des 2019			
	
	
					
				Jólin eru hátíð ljóssins og kveikja þá flestir á jólaseríum og jólaljósum.
Mikilvægt er að ganga um rafmagn og rafmagnsbúnað á ábyrgan hátt.
 
Atriði sem vert er að hafa í huga:
 
- 
Látum aldrei loga á ljósunum á jólatrénu yfir nótt eða þegar engin er heima
- 
Hendum gömlum jólaljósum sem eru úr sér gengin
- 
Notum ætíð ljósaperur af réttri gerð, stærð og styrkleika
- 
Gætum þess að brennanleg efni séu ekki nálægt jólaljósum
- 
Óvarinn rafbúnaður getur valdið raflosti
- 
Vörum okkur á óvönduðum jólaljósum
- 
Inniljós má aldrei nota utandyra
- 
Förum eftir leiðbeiningum um uppsetningu og notkun
- 
Látum logandi kerti aldrei standa ofan á raftæki
- 
Góður siður er að skipta um rafhlöður í reykskynjurum fyrir hver jól