Við hjá RAFMENNT leitum að lausnarmiðuðum verkefnastjóra til starfa við endur- og símenntun á sviði smáspennu

 

Helstu verkefni

  • Starfsmaður skipuleggur endur- og símenntun á svið smáspennu
  • Fylgist með nýjungum á sviði smáspennu
  • Fylgist með nýjungum á rafrænum samskiptum
  • Þróun námskeiða
  • Greinir þörf fyrir endur- og símenntun

 Hæfniskröfur

  • Reynsla af störfum á sviði smáspennu
  • Skipulagshæfni og frumkvæði í starfi
  • Góð samskiptahæfni
  • Reynsla að verkefnastjórnun og teymisvinnu
  • Þekking á endur- og símenntun kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku

Menntunarkröfur

  • Krafa er um formlega menntun á rafiðnaðarsviði
  • Kennsluréttindi kostur

 

RAFMENNT hefur það hlutverk að bjóða fræðslu og styðja fræðslutengd verkefni með það að markmiði að uppfylla fræðsluþörf á sviði rafiðnaðar og svara þannig þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma.


Við erum 10 manns sem störfum hjá RAFMENNT við fjölbreytt störf sem snúa að menntun og endurmenntun félagsmanna.

Umsóknir skulu sendar til framkvæmdastjóra sem veitir nánari upplýsingar um starfi á netfangið thor@rafmennt.is.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.

Umsóknarfrestur til og með 27. nóvember