Kjarni

Tilgangur starfsins er að sjá um klippingar á efni, mynd og hljóð, fyrir miðla. Markmiðið er að velja, klippa og skapa myndskeið svo úr verði heildstæð frásögn, styttri eða lengri. Unnið er ýmist eftir handriti eða annarri forskrift.

Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og þekkingar á mynd- og eftirvinnslu efnis. Starf við klippingu mynd- og hljóðefnis krefst þekkingar á tæknilegum úrlausnum ólíkra verkefna svo efni standist kröfur til birtingar eða til frekari eftirvinnslu. Starfið krefst getu til að halda yfirsýn, vinna vel og markvisst innan tímaramma, vandvirkni og skýrri hugsun undir álagi.

Mikilvægt er að fylgjast með faglegri þróun, vera lausnamiðaður og geta veitt skapandi ráðgjöf. Þekkja til helstu stiga framleiðslunnar, til að geta sótt og / eða miðlað upplýsingum verkefnis á réttan stað. Unnið er á tölvu, góður tæknibúnaður og gagnageymsla nauðsynleg og æskilegt er að hljóðvist, birtuskilyrði og næði séu sem best.

Starfið er unnið í samstarfi við stjórnendur framleiðslu. Í umfangsmeiri verkefnum vinna teymi gjarnan saman. Starfið felur almennt ekki í sér mannaforráð, en getur verið með aðstoðar manneskju.

 

Starfaprófíll - Klipping myndefnis og hljóðs

Matslisti - Klipping myndefnis og hljóðs

Viðfangsefni

Forvinnsla
- Verkefnastaða dagsins
- Tímarammi
- Móttaka efnis
- Útbúa lágupplausna vinnuskrár úr hráefni
- Samstilling myndar og hljóðs
- Halda utan um safnefni og annað aðkeypt efni
- Flokkun og merking efnis
- Kynna sér allt efnið í upphafi
- Láta framleiðslu vita af vandkvæðum / mistökum á efni
- Nota viðeigandi gagnageymsly

Klippivinna
- Samstarf við aðrar deildir
- Samstarf við framleiðslu og/eða verkkaupa
- Gera grófklipp eftir handriti / forskrift
- Klipp sent til skoðunar
- Uppfærð klipp eftir athugasemdum
- Grafík / hljóð staðsett á myndefni
- Læst klipp
- Að efni standist kröfur um skil
- Velja myndefni, raða saman í frásögn
- Koma með tillögur að lausnum á frásögn
- Gera öryggisafrit af vinnugögnum
- Halda utan um fyrri útgáfur klipps

Skil efnis og frágangur
- Skráning / skýrslugerð
- Vista efni á réttu formi/sniði
- Gera öryggisafrit af efni
- Afurð / efni sent til eftirvinnslu
- Afurð / efni sent til birtingar
- Virða ólíka skilafresti mismunandi hluta klipps.