Laugardaginn 7. júní fór fram glæsileg útskrift Kvikmyndaskóla Íslands í Laugarásbíó. Alls útskrifuðust 21 nemendur og kynntu þau fjölbreytt og metnaðarfull lokaverkefni sín vikunni fyrir útskrift fyrir fjölmennum hópi gesta. Á útskriftardag voru sýndar þær myndir sem þóttu skara fram úr í hverri deild.
Í frétt skólans kemur fram að óvissa hafi ríkt um framkvæmd útskriftarinnar, en með samstilltu átaki tókst að halda hátíðlega athöfn þar sem skapandi kraftar nemenda fékk að njóta sín til fulls.
Rafmennt hefur átt í samtali við Mennta- og barnamálaráðuneytið um að áfram verði veittur fjárhagsstuðningur við námið, en heimildir eru til slíks í fjárlögum. Stuðningur stjórnvalda mun tryggja framhald námsins, sem íslenskur kvikmyndaiðnaður byggir í síauknum mæli á. Stór hluti starfsfólks í kvikmyndaverkefnum á Íslandi eru útskrifaðir nemendur skólans.
Útskriftin var því ekki aðeins fagnaðarhátíð nemenda, fjölskyldna þeirra og kennara – heldur einnig tákn um mikilvægi þess að fjárfesta í menntun, þekkingu og framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar.
Við óskum útskriftarnemum innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim í kvikmyndaheiminum!
Hægt er að nálgast myndir frá útskrift hér.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050