Frá afhendingu sveinsbréfa í apríl á Hilton Nordica.
Frá afhendingu sveinsbréfa í apríl á Hilton Nordica.

Föstudaginn 10. apríl fór fram hátíðleg athöfn á Hilton Nordica þar sem nýsveinum í rafiðngreinum voru afhent sveinsbréf.

Alls hlutu 102 nýsveinar sveinsbréf að þessu sinni. Skiptingin eftir greinum var eftirfarandi:

  • 80 rafvirkjar
  • 12 rafveituvirkjar
  • 10 rafeindavirkjar

Afhending sveinsbréfa er mikilvægur áfangi í námi fagfólks í rafiðnaði og markar formleg lok sveinsnáms. Viðburðurinn er jafnframt tilefni til að fagna árangri nýsveina og þeirri fagmennsku sem þeir færa með sér inn í atvinnulífið.

Rafmennt óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í störfum sínum.



Myndir koma í vikunni inná  Flickr síðu Rafmenntar.