Skólinn býður uppá 4 námsbrautir sem sameina fræðilega þekkingu og verklega reynslu undir handleiðslu reyndra kennara og fagfólks úr kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinum. Námið hentar bæði þeim sem stefna á atvinnuferil í greininni og þeim sem vilja efla færni sína á skapandi sviði.
Nemendur fá tækifæri til að vinna að raunverulegum verkefnum, þróa eigin hugmyndir og mynda tengslanet sem nýtist í framtíðarstarfi.
Nánari upplýsingar um námið og skráning inná vefsíðu Kvikmyndaskóla Íslands - https://www.kvikmyndaskoli.is/
Umsóknarfrestur stendur til 20. ágúst.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050