Rafmennt ásamt Birni Steinbekk bjóða upp á fræðsluerindi um dróna og notagildi þeirra fimmtudaginn 26. febrúar kl. 12:00–13:00.

Drónar hafa á skömmum tíma orðið eitt áhugaverðasta og öflugasta verkfæri samtímans – bæði í atvinnulífi og til persónulegra nota. Þeir eru notaðir í mynd- og kvikmyndagerð, fasteignakynningum, landmælingum, ferðamennsku, eftirliti og fjölmörgu fleiru.

En með auknum möguleikum fylgir ábyrgð. Reglur um drónaflug hafa þróast hratt og mikilvægt er að þekkja réttindi, skyldur og öryggissjónarmið áður en farið er í loftið.

Á fundinum verður meðal annars fjallað um:
- Hvernig drónatæknin hefur þróast síðustu ár
- Helstu tegundir dróna og mismunandi notkunarsvið
- Grunnatriði í reglum um drónaflug
- Verkefni og reynslu fyrirlesara af drónaverkefnum
- Spurningar og svör ásamt almennu spjalli um dróna

Fundurinn hentar öllum sem hafa áhuga á drónum – hvort sem um er að ræða byrjendur sem eru að velta fyrir sér fyrstu kaupum, vana drónastjórnendur eða þá sem vilja tryggja að þeir fljúgi í samræmi við gildandi reglur.

Fræðsluerindið er haldið í húsi Rafmenntar að Stórhöfða 27, 1. hæð - gengið inn Grafarvogsmeginn.
Fundurinn verður einnig í beinu streymi á YouTube rás Rafmenntar: https://www.youtube.com/rafmennt/live
Léttar veitingar verða í boði á staðnum. Hlökkum til að sjá ykkur!