Útskrift meistaranema, kvikmyndatækni og afhending sveinsbréfa í raf- og rafeindavirkjun voru afhend við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica þann 19. desember. Alls útskrifuðust 94 nemendur við þetta tilefni.

Sveinsbréf
voru afhent til 50 nemenda, þar af:

  • 49 í rafvirkjun

  • 1 í rafeindavirkjun

Af þeim sem hlutu sveinsbréf voru 6 konur, sem markar mikilvægan áfanga í áframhaldandi eflingu fjölbreytni og jafnréttis innan rafiðngreina.


Auk þess útskrifuðust:

  • 15 nemendur úr námi í kvikmyndatækni

  • 29 nemendur úr meistaraskóla rafvirkja

  • 1 nemandi lauk námi bæði úr meistaraskóla rafvirkja og rafeindavirkja

Við athöfnina voru einnig veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófum.




Anika Ýr Jóhannsdóttir
hlaut viðurkenningu fyrir heildarárangur á sveinsprófi í rafvirkjun í október 2025. Hún hlaut að gjöf AVO-mæli frá Smith & Norland, veittan af SART – Samtökum rafverktaka. Að auki hlaut hún verðlaun fyrir framúrskarandi skriflegan árangur í rafvirkjun, þar sem hún fékk Milwaukee batterýborvél frá Rubix.

Róbert Khorchai Angeluson hlaut verðlaun fyrir verklegan árangur í rafvirkjun og fékk Milwaukee batterýborvél frá Rubix, veitta af FÍR – Félagi íslenskra rafvirkja.

Rafmennt óskar öllum útskrifuðum nemendum innilega til hamingju með árangurinn og þakkar samstarfsaðilum fyrir mikilvægan stuðning við faglega menntun og þróun rafiðngreina og kvikmyndatækni á Íslandi.

Hægt er að nálgast myndir frá útskrift hér!