Hefur þú lokið grunnnámskeiðinu í Claude og vilt fara skrefinu lengra?
Í þessari 4 klukkustunda vinnustofu vinnum við með raunveruleg verkefni þátttakenda og skoðum hvernig hægt er að nýta Claude til að leysa flóknari verkefni, byggja upp skilvirk vinnuflæði og tengja gervigreind við daglegt starf.
Markmiðið er að þú farir heim með lausnir, ferla og aðferðir sem nýtast strax í þínu starfi.
Hönnun og þróun eigin AI-vinnuflæðis
Claude Projects og skipulag þekkingar
Notkun innri gagna og skjala til að byggja upp sérhæfða aðstoðarmenn
Advanced Prompt Engineering fyrir flóknari verkefni
Greining gagna, skýrslugerð og ákvarðanataka með Claude
Hvernig Claude getur stutt við verkefnastjórnun, markaðsmál, sölu, þjónustu og rekstur
Kynning á MCP (Model Context Protocol) og tengingum við önnur kerfi
Verkleg vinna með raunveruleg verkefni þátttakenda
Vinnustofan er ætluð þeim sem hafa lokið grunnnámskeiðinu í Claude eða hafa þegar grunnþekkingu á notkun Claude og vilja nýta möguleika kerfisins betur í eigin rekstri og verkefnum.
Námskeiðið er byggt upp sem verkleg vinnustofa þar sem þátttakendur vinna með eigin verkefni undir leiðsögn kennara. Lögð er áhersla á umræður, lausnaleit og hagnýta notkun fremur en hefðbundna fyrirlestra.
Að lokinni vinnustofunni hafa þátttakendur þróað eigin vinnuaðferðir og fengið reynslu af því að nýta Claude sem virkt verkfæri í daglegu starfi.
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
Fullt verð: 29.900 kr
RSÍ endurmenntun: 10.900 kr
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Vinnustofa í Claude - I | 14. júl. 2026 | 09:00 - 12:30 | Stórhöfði 27 | 29.900 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050