Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR

Vinnuréttur fyrir vinnuveitendur

Vinnuréttur fyrir vinnuveitendur
Fullt verð
40.000 kr
RSÍ endurmenntun
15.000 kr
Skrá mig

Í þessum þremur námskeiðum er fjallað um helstu atriði sem nýtast vinnuveitendum í starfsmanna- og vinnuréttarmálum. Áhersla er lögð á að draga úr eða koma í veg fyrir ágreining við starfsmenn og um leið að nýta reglur vinnuréttar til þess að bæta rekstur og gera vinnustaðinn eftirsóknarverðan.

Efnisþættir námskeiðanna

Í þessum námskeiðum er fjallað um helstu atriði sem nýtast vinnuveitendum í starfsmanna- og vinnuréttarmálum. Áhersla er lögð á að draga úr eða koma í veg fyrir ágreining við starfsmenn og um leið að nýta reglur vinnuréttar til þess að bæta rekstur og gera vinnustaðinn eftirsóknarverðan.

Einnig er áhersla lögð á að kynna nemendum skipulag á íslenskum vinnumarkaði og bent á hagnýtar, gagnlegar og raunhæfar leiðir til þess að komast hjá ágreiningi og skýra réttarsamband aðila. Þar skipta skilningur og skipulag vinnuveitanda miklu máli. Sérstaklega er fjallað um raunveruleg dæmi um ágreiningsefni á vinnustöðum og hvernig megi draga úr eða koma í veg fyrir slík ágreiningsmál.

Námskeiðið er í þremur hlutum sem saman gefa heildarmynd af þeim verkefnum sem stjórnendum og starfsmönnum sem koma að starfsmannamálum og launamálum ber að hafa í huga.

Námskeið 1 – Almennt um vinnurétt

  • Almennt um vinnurétt
  • Almennur og opinber vinnumarkaður
  • Atvinnurekendasamtök og stéttarfélög
  • Réttarheimildir og lögskýringargögn í vinnurétti
  • Túlkun kjarasamninga
  • Dæmi um að nýta sér vinnurétt við stjórnun

Námskeið 2 – Ráðningar og skipulag starfsmannamála

  • Ráðningar og skipulag starfsmannamála
  • Ráðningarsamningar, efni og uppsetning
  • Efni ráðningarsamninga
  • Reglur á vinnustað
  • Nánar um laun og launabreytingar
  • Önnur ákvæði ráðningarsamnings
  • Réttarheimildir og lögskýringargögn á vinnustaðnum

Námskeið 3 – Starfslok

  • Almennt um starfslok
  • Uppsagnarréttur og uppsögn
  • Framkvæmd uppsagnar
  • Uppsagnarfrestur og vinna á uppsagnarfresti
  • Tilefni uppsagnar
  • Takmarkanir á uppsagnarrétti
  • Afturköllun uppsagnar
  • Uppsögn að hluta/breyting
  • Riftun ráðningarsamnings
Fyrir hverja er námskeiðið

Námskeiðið hentar þeim sem koma að starfsmannamálum, stjórnunarhlutverki eða daglegum samskiptum og ákvörðunum á vinnustað. Námskeiðið er hagnýtt og byggir á raunverulegum dæmum um ágreiningsefni á vinnustöðum.

Skipulagið

Námskeiðin eru á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem hentar þeim.

Efni námskeiðanna er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.

  Sveigjanlegar dagsetningar

  Á eigin hraða

  Kennslukerfi Opna háskólans í HR

Leiðbeinandi

Einar Örn Davíðsson
Hdl. og sjálfstætt starfandi lögmaður

Einar Örn stundaði laganám við Katholieke Universiteit Leuven í Belgíu og Háskóla Íslands, og útskrifaðist árið 2001 sem Cand. jur. Hann öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2003 og varð löggiltur verðbréfamiðlari árið 2005.

Einar Örn hefur meðal annars starfað hjá hagsmunasamtökum atvinnurekenda og fjármálastofnunum.


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð 40.000 kr
RSÍ endurmenntun 15.000 kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Flokkar: Almenn námskeið
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Vinnuréttur fyrir vinnuveitendur 01. okt. 2026 - 19. des. 2026 Alltaf opið Á netinu 15.000 kr. Skráning