Kynntir verða helstu íhlutir rafdreifikerfa, þar á meðal kaplar, tenglar, rafmagnsdreifitöflur og varnarbúnaður. Farið verður yfir rétta meðferð búnaðar, val á viðeigandi lausnum og mikilvægi vandaðrar uppsetningar til að tryggja öruggan rekstur viðburða.
Þátttakendur læra að meta og reikna út orkuþörf mismunandi viðburða, greina álagsþætti og skipuleggja álagsdreifingu þannig að rafkerfið nýtist sem best. Einnig verður fjallað um mismunandi tegundir álags, svo sem hljóðkerfi, ljósabúnað, myndbúnað, veitingabúnað og annan tæknibúnað sem algengur er á viðburðum.
Sérstök áhersla verður lögð á rafmagnsöryggi og bestu starfsvenjur. Farið verður yfir áhættumat, val á viðeigandi vörnum og þær áskoranir sem geta skapast við uppsetningu utandyra, meðal annars vegna veðurskilyrða, raka og annarra umhverfisþátta.
Að námskeiði loknu munu þátttakendur hafa betri skilning á því hvernig hanna, setja upp og reka örugg og skilvirk rafdreifikerfi fyrir viðburði, ásamt því að geta metið orkuþörf, dreift álagi á réttan hátt og lágmarkað áhættu tengda rafmagnsöryggi.
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
Fullt verð: 31.200.- kr
RSÍ endurmenntun: 10.920.- kr
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
Skrái þátttakandi sig af námskeiði með minna en 2 vikna fyrirvara áskilur Rafmennt sér rétt til innheimtu 50% námskeiðsgjalds.
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Rafdreifing fyrir viðburði | 14. okt. 2026 | Gunnar Gunnarsson | 09:00 - 16:00 | Stórhöfði 27 | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050