Námskeið í samstarfi við Rafport og Loxone
Áfangaheiti: FRLA32Loxone Partner
Loxone er öflugt hússtjórnarkerfi sem nýtist til sjálfvirknivæðingar í íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og opinberum byggingum. Með kerfinu er hægt að samþætta lýsingu, hitun, gluggatjöld, loftræsingu, aðgangsstýringu, hljóðkerfi, orkustjórnun og fjölmörg önnur tæknikerfi í eina heildstæða lausn.
Á þessu fjögurra daga grunnnámskeiði fá þátttakendur hagnýta og verklega þjálfun í uppsetningu, forritun og gangsetningu Loxone kerfa. Unnið er með raunhæf verkefni þar sem þátttakendur setja upp kerfi frá grunni, forrita virkni og sannreyna lausnir í verklegu umhverfi.
Námskeiðið er kennt samkvæmt viðurkenndu kennsluefni Loxone og er ætlað þeim sem vilja öðlast traustan grunn til að vinna með kerfið í atvinnuskyni.
Að námskeiði loknu geta þátttakendur:
Námskeiðið er ætlað:
Æskilegt er að þátttakendur hafi:
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
Kennslan byggir á fyrirlestrum, sýnikennslu og umfangsmiklum verklegum æfingum þar sem þátttakendur vinna sjálfir að uppsetningu og forritun kerfisins.
Ekki er um formlegt próf að ræða. Þátttakendur vinna verkleg verkefni sem byggja á því efni sem farið er yfir á námskeiðinu.
Kennslugögn eru innifalin og þátttakendur fá aðgang að viðurkenndu kennsluefni frá Loxone. Í námsgjöldum er innifalin þátttaka í Foundation Training-grunnþjálfun Loxone, auk Demo Case — sýnikennslutösku með helsta búnaði.
Mælum með nemendur noti sínar eigin tölvur á námskeiðinu, nemendur þurfa að setja upp Loxone Config 17 sem nálgast má á eftirfarandi slóð: https://www.loxone.com/enus/support/downloads/
Rafmennt útvegar tölvu fyrir þá sem þess þurfa.
Við lok námskeiðs fá þátttakendur staðfestingu á þátttöku samkvæmt reglum LOXONE.
28. september – 1. október 2026
4 dagar – 32 klst.
Rafmennt, Stórhöfða 27
Alþjóðleg vottun frá Loxone
Fjögurra daga námskeið með verklegum æfingum á kennslutösku.
| Mánudagurinn 28. september 08:30 – 16:30 |
| Þriðjudagurinn 29. september 08:30 – 16:30 |
| Miðvikudagurinn 30. september 08:30 – 16:30 |
| Fimmtudagurinn 1. október 08:30 – 16:30 |
Að loknu námskeiði fá nemendur Silver Partner vottun frá Loxone sem veitir aðgengi að meira ítarefni um búnað og uppsetningar ásamt því að fá búnað á betri kjörum.
Þau sem eiga tösku og vilja fá Loxone Silver Partner vottun býðst námskeiðið á töluvert lægra verði eða frá 11.990 kr. Vinsamlegast hafið samband við Rafmennt ef svo ber við.
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
| Fullt verð | 139.000 kr |
|---|---|
| SART | 125.000 kr |
| RSÍ endurmenntun | 99.000 kr |
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Loxone hússtjórnarkerfi – Uppsetning og forritun (Grunnnámskeið) | 28. sep. 2026 - 01. okt. 2026 | Rafmennt ehf. Arnar Bjarnason | 08:30 - 16:30 | Stórhöfði 27 | 99.000 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050