Námskeið í samstarfi við Þekkingarmiðlun
Áfangaheiti: ALMN02STALOK
Það liggur fyrir okkur flestum að eldast og fara á eftirlaun. Við vonum öll að þessi tími verði áhyggjulaus og oftast er hann það en það er ekkert sjálfgefið. Það er mikil áskorun að fara inn í eftirlaunaárin og hætta á vinnumarkaði. Það verða bæði fjárhagslegar og félagslegar breytingar, sem margir hræðast.
Guðmundur Ragnarsson hefur mikla reynslu af þessum málum og fer í fyrirlestrinum yfir þau fjölmörgu
atriði sem þarf að huga að þegar styttist í starfslok. Meðal þess sem hann fer yfir er að vera með skýra
sýn á það hver framfærslan verður frá lífeyrissjóðnum og Tryggingastofnun og hvar maður getur séð stöðuna.
Annað sem þarf að vera á hreinu eru sambúðar- og erfðamálin, en illa getur farið ef ekki er vandað til verka. Guðmundur ræðir einnig um mikilvægi þess að njóta lífsins á meðan heilsan er góð.
Fyrirlesturinn vekur upp margar spurningar sem gott er að skoða tímanlega og komast úr því að halda,
sem veldur áhyggjum, yfir í að vita, sem veitir öryggi. Hann hentar þeim sem eru komnir yfir fimmtugt
og stefna á að eiga áhyggjulaust ævikvöld.
Guðmundur Ragnarsson er vélfræðingur og starfaði sem formaður VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna í 10 ár. Hann var stjórnarmaður í Gildi lífeyrisjóði í 8 ár og sat í miðstjórn ASÍ í 10 ár. Hann rekur í dag GR ráðgjöf og veitir fólki persónulega ráðgjöf varðandi starfslok.
Fullt verð: 20.500 kr
RSÍ endurmenntun: 7.200 kr
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Hver verður staða min við starfslok | 24. feb. 2026 | Rafmennt ehf. | 16:30 - 18:30 | Stórhöfði 27 | 7.200 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050